|
|
20.01.2009 17:11:25 / harpa
Já nú nenni ég þessu ekki lengur... Læt mér nægja Facebook og barnalandið Takk fyrir að lesa bloggið mitt.. en nú er ég hætt.. kveðja Harpa..
»
07.01.2009 19:48:19 / harpa
Gleðilegt árið allir saman. Þá eru jólin búin og nýtt ár að hefjast, við höfum haft það ágætt.. nóg búið að vera gera allavega.. veisluboðin endalaus, við skírðum litlu dömuna okkar hana Hafdísi Rán. Við vorum heima hjá mömmu og pabba á aðfangadag og svo heima hjá Sæma og Hrefnu á gamlárskvöld.. þetta var allt voða skemmtilegt.. hittum mikið af fólki og stelpurnar góðar. Reyndar á annan í jólum þá sprakk hljóðhimnan í Halldóru Margréti, hún búin að vera á miklu pensilini vegna eyrnabólgu, og ekkert lagast.. svo við vorum í dag með hana í nefkirtlatöku og hún fékk líka rör í eyrun, þessi elska, stóð sig eins og hetja  en vááá hún var alveg svakalega örg að vakna eftir svæfinguna:/ hún var eins og óður ormur í fanginu á mér í 20 mín. snéri sér í hring eftir hring og ég verð örugglega með harðsperrur... Ræktin búin í dag  svo steinliggur hún bara núna, alveg búin á því eftir þetta allt saman greyið. En vonum að nýtt ár færi okkur BATA hjá henni, dugnaðar skvísunni okkar. Jæja ég er bara búin að týna saman jólaskrautið... svo var ég að fara í gegnum fatakassa frá stelpunum... Vóó þetta er mikið  það er eins gott að fara snúast í þessu öllu saman áður en við flytjum.. ágætt að vera búin að koma skipulagi á þetta  Kv. Hgs
»
05.12.2008 11:19:52 / harpa
Váá hvað maður getur verið latur við þetta blogg, kannski því það er ekkert mikið að frétta.. En hvað skal segja, hummm Við erum alltaf í einhverju veikindarbrasi með Halldóru Margréti, en þó ótrúlegt sé þá er hún alltaf svo hress að maður treinar alltaf að fara með hana til doxa, en sem betur fer fór ég með hana í gær... hún er með asma og þurfti að fara á 2 asmalyf og pensilín við eyrunum því það er ennþá bólga í eyrunum á henni, greyið:/ en við erum bara í rólegheitum heima með kertaljós, bækur og kósý Ég fór á frænkukvöld í vikunni og það er alltaf jafn gaman Maður er að verða búinn með jólagjafainnkaupin, skellti mér í kringluna eitt kvöldið á reddaði þessu  engin Glasgow ferð í ár:/ Tengdó drifu sig til Frankfurt í jólaferð, nokkrar vinkonur mínar skelltu sér til Boston í jólainnkaup, þó það sé ekki alveg hentugasti tíminn en pottþétt alveg svakalega gaman... Öfund öfund
Jæja segjum þetta gott... Hafið það gott í jólagleðinni Kv HGS
»
22.11.2008 15:07:24 / harpa
Jahérna hér, hún Halldóra mín er aftur orðin lasin þessi elska, var orðin eitthvað sloj í gærdag.. búin að vera með í eyrunum svo fór hún að æla í nótt.. húff.. og hiti ofaní þetta allt saman. Ótrúlegt hvað hún er samt hress að sjá. HETJAN MÍN 
Við mæðgur erum því alltaf fastar hér heima.. er farin að þrá að fara eitthvað út á flakk.. alveg þreytt á að hanga svona heima. Húnbogi að vinna í húsinu, nóg að gera þar við að klára loka húsinu. ohh hvað ég hlakka til þegar við getum bara farið suður aftur Ég fór í foreldraviðtal á leikskólanum í vikunni, og það var bara sagt Fröken Halldóra Margrét hahah... hún er svo mikil ráðskona og nánast aðstoðar deildarstjóri var mér sagt.. heheh  þannig er það að hún veit alla hluti og hægt að spyrja hana útí hver á hitt og þetta.. svo ætlar hún að ráðskast með hluti og stjórnast eitthvað.. en þau eru víst öll á þessum nótunum þarna, þessi litlu stýri hún er voða dugleg, óþolinmóð svo hún bíður ekkert eftir að vera sinnt, svo hún reddar sér bara sjálf.. hún dundar sér voða mikið í púslum og er farin að þurfa meiri og krefjandi púsl.. ohh svo dugleg þessi elska, EIN MONTIN MAMMA  æ það er svo gaman að heyra svona hluti..
En jæja ætla fara knúsa Hafdísi á meðan Halldóran mín sefur ble ble..
»
16.11.2008 13:23:10 / harpa
jahérna hér hvað maður getur stundum skuldað í svefnbankann... ég er búin með 3 kaffibolla í morgun.. húff:/ Húnbogi fór í mardalinn í morgun og ég með skvísurnar heima, Halldóra búin að vera veik heima alla vikuna svo hún verður Alsæl að komast á leikskólann á morgun, hún sat í glugganum hér á föstudaginn og horfði út á krakkanna  váá hún iðaði af gleði  Konurnar sáu hana og vinkuðu, þá ljómaði hún sko allan hringinn og veifaði tilbaka Ég skellti mér á jammið á föstudaginn með skvísunum.. vorum 7 saman sem fórum á players, á móti sól var að spila.. það var rosa gaman, ég mjólkaði mig bara og fékk mér aðeins í glas Jæja smá hvíldarsmuga.. ætla nýta mér það kv Hgs.
»
09.11.2008 10:19:50 / harpa
já það má segja að það sé alltaf nóg að gera, finnst eins og maður sé með miklu stærra heimili en er.. skil ekki hvað verkefnin hrannast upp og ég er ALLTAF á fullu, húff Húnbogi er að vinna í húsinu okkar núna um helgina. Við skvísur löbbuðum í kolaportið í gær til þess að kaupa flatkökur fyrir útförina hjá ömmu, ég keypti 80 stk, og vááá það var þungt, skellti þeim bara á grindina í vagninum..svo var Halldóra mín svo dugleg að keyra Hafdísi systir sína með mömmu sinni að hún sleppti varla, fyrr en við vorum komin í kolaportið þá vildi mín vaða áfram útum allt.. svo við fórum bara beinustu leið út, varla hægt að labba með vagnin þarna vegna þrengsla.. við komum bara við á róló í leiðinni og þar var hún alveg óð af hamingju
En nú erum við Hafdís bara 2 heima, Húnbogi tók Halldóru með sér í morgun suður, hún fékk að fara til ömmu og afa í steinási,kíkja í morgunkaffi í kökuveislu sem henni finnst ekki leiðinlegt .... svo förum við suður í dag .. erum að fara í afmæli til Magneu Guðnýjar, hún verður 12 ára skvísan á morgun, svo er planið að ég og Hafdís gistum bara fyrir sunnan, það þarf að smyrja allar þessar flatkökur í kvöld og svo verður æfing á morgun, við frændsystkinin berum kistuna og kransa.
Jiiii við Húnbogi fórum á fimmtudagskvöldið í leikhús á "fló á skinni" Guðs minn eini við hlóum og hlóum  þetta var alveg meiriháttar sýning, þetta var alveg svakalega skemmtilegt  Takk fyrir okkur Anna María og fjölskylda  þau buðu okkur í leikhús og svo pössuðu Anna og Ásdís fyrir okkur á meðan, þetta var sængurgjöf til okkar frá þeim  alveg frábært.
Jæja ætli það sé ekki best að fara græja tösku fyrir okkur mæðgur.. túrúlú.
»
06.11.2008 10:58:39 / harpa
Þetta er allt svo óraunverulegt.. alveg kveið maður þessum degi að missa ömmu önnu. En hún var sem betur fer heilsuhraust og orðin öldruð, svo veit maður að þetta er hringrás lífsins. Þetta er samt alltaf svo erfitt og tilfinningaþrungið, maður hreinlega tárast yfir öllum góðu minningunum okkar. Það er kistulagning í dag og jarðaförin fer fram í Njarðvíkurkirkju á mánudaginn 10.nóv. Við erum svo glöð með það að hafa heimsótt hana viku áður en hún kvaddi, fórum öll 4 til hennar og hún var svo glöð að sjá okkur öll, og að sjá Hafdísi Rán í fyrsta og eina skiptið, yngsta langömmubarnið sitt. En það er ósköp lítið að frétta af okkur, skruddurnar báðar með einhverja kvefdrullu í sér. Það var verið að hringja frá leikskólanum hennar Halldóru og á að loka deildinni um 3 venga manneklu, svo ég ætla að fara að ná í skvísuna snemma.. láta hana bara lúlla hér heima. jæja bless í bili. kv Harpa.
»
02.11.2008 23:53:49 / harpa
jahérna hér, ég skil ekkert í þessu... svo margir sem eru að skoða síðuna hérna allavega svo teljarinn á síðunni segir.. var farin að hugsa um að hætta þessu bara.. en ef það eru 60-80 á dag að lesa þá spyr maður sig.. En hverjir... hum 
Við Soffía kíktum á Sólon á föstudagskv í smá tjatt.. vorum voða rólegar  sátum þarna í tjatti sem varð að öskri eftir smá stund því tónlistin var svo hátt stillt, svo fannst okkur þetta frekar fúlt þegar við vorum ekki að fatta lögin, sem sagði okkur að við værum frekar out.... ekki alveg inní danstónlistar og næturlífstílnum.. Við verðum bara að fara kíkja út oftar...
Húnbogi var að vinna í dag í húsinu okkar og við skvísurnar vorum hér heima, mamma og pabbi kíktu við og við nýttum þau í smá passerí. Ég og Halldóra fórum í smáralindina til að sjá Siggu og Maríu í Söngvaborg sem átti að vera á sviði, en svo dróst það svo á langinn að við við nenntum ekki að labba endalausa hringi í búðunum svo við fórum bara heim með söngvaborg 5 og settum í tækið. Sigurbjörg og Björgvin komu til okkar í mat í kvöld, ég skellti bara í pizzu og var þetta bara ljómandi fínt kvöld..
kv Harpa... ps- nýjar myndir inná barnaland.is/barn/52102
»
31.10.2008 20:46:48 / harpa
já hvað haldið þið... mín ætlar að kíkja á mannlífið í kvöld  dííí það er langt síðan. Soffía ætlar að kíkja til mín og við ætlum að taka smá rölt, bara kíkja inn á einhvern stað og fá okkur einn kaffi, spurning hvort maður stelist í eitt rauðvínsglas  smá stelputjatt og skemmtilegheit. Ég og Hafdís Rán fórum suður í Njarðvík í gær, það var saumaklúbbur hjá Sonju. Ferlega gaman að hitta skvísurnar, svo styttist bara í jólasaumó  Svo erum við Húnbogi að fara í leikhús á fimmtudaginn á "Fló á Skinni" Anna systir og famelía gáfu okkur það í sængurgjöf og ætla að passa fyrir okkur á meðan, ótrúlega sætt og við hlökkum mikið til. Jæja maður ætti að fara gera sig til fyrir kvöldið.... kv Hgs.
»
28.10.2008 12:39:11 / harpa
Brrrr.. það er orðið kalt úti, veturinn kominn, kvef í húsi og bla bla bla. Við nefndum litlu dömuna okkar á laugardaginn, ber hún nafnið Hafdís Rán. Við fórum suður í Reyknanesbæ og fengum að nefna hana í Steinásnum hjá tengdó, buðum mömmu og pabba bara þangað og nutum þess að vera saman yfir gómsætum kökum sem hún tengdamamma mín bauð uppá, alveg yndisleg alltaf hreint.. Hafdís Rán greyið er með kvef og ljótann hósta.. búið að vera svolítinn tíma svo við ætlum að fara með hana og láta hlusta..ekki nema 4 vikna svo manni stendur nú ekki á sama.
Við fórum í mat til Önnu sys á sunnudaginn í lax og sjóbirting. Mmm þetta var æðislega gott, hún systir mín alltaf svo myndó  forrétt, eftirrétt og alles. Halldóra Margrét alveg í S-inu sínu að leika með allt þetta flotta dót sem hún Guðrún Ágústa á.. svo þegar verið var að gæla sér á eftirréttinum þá bað mín bara um meiiia ísss.. og kinnkaði kolli  hehehe Algjört raggat.
jæja ætla halda áfram að slá á þráðinn til Dk kv Harpa
»
23.10.2008 12:49:36 / harpa
Það er nú ekki frá miklu að segja en setjum eina létta færslu inn.. Litla skruddan er búin að vera með vott af kvefi, ljótur hósti og augnsýking einhver.. svo ég hef sama og ekkert farið með hana út. Vil ekki vera að því þegar það er svona kalt úti líka. Það er munur á að eiga í febrúar eins og síðast og svo núna í sept.. maður fer minna á flakk útaf veðrinu:/ Svo ef þið eruð á ferðinni þá á ég kaffi á könnunni  heima í hlýjunni Við erum að hugsa um að nefna litlu dömuna og skíra svo um jólin bless í bili. HGS
»
18.10.2008 13:34:44 / harpa
»
18.10.2008 13:12:09 / harpa
Já við erum bara 2 í koti ég og skottan, sem er rúmlega 2 vikna. Það gengur rosalega vel, hún er vær og góð.. sefur mjög mikið og kannar okkur fjölskylduna Halldóra Margrét er bara alltaf á einhverju flakki.. síðustu 2 vikur fór hún heim með ömmu og afa í steinásinn.. svo vildu hin amman og afinn endilega fá hana með uppí sumarbústað um helgina.. svo hún fékk að fara með þangað, alveg alsæl að mér heyrist  Ester og Stefán eru líka þar með stelpurnar svo það er nóg af leikfélögum fyrir skvísuna Húnbogi fór í Njarðvík í morgun.. því gluggarnir í húsið okkar eru komnir og þurftu þeir að fara losa 40 feta gám af gluggum takk fyrir... En þetta gengur ágætlega þarna hjá okkur.. en við ætlum nú að flýta okkur hægt miðað við aðstæður 
Eigið góða helgi ezkurnar... knúsar.. HGS
»
13.10.2008 21:49:59 / harpa
Já krepputal er það sem er á vörum fólks í dag.. allir að hafa áhyggjur, hlustandi á alla fréttatíma og svo framvegis.. Geir H. með blaðamannafundi og allir límdir við það. Hvað gerist á góða Íslandi næstu mánuði og ár.. Vonum bara að allt lagist.. Ætli næstu tímar verði ekki svona "hippótímar" allir góðir við alla... heh og maður nýtir allt sem til er í skápunum, maður léttist þá kannski frekar en annað  það er þó betra að vera hagsýnn en að halda að ekkert sé breytt..
Litla snúllan okkar er að verða 2 vikna gömul.. og gengur rosalega vel með hana, drekkur vel og sefur vel.. sumar nætur hafa þó verið strembnar.. henni finnst voða gott að vera á brjósti þá.. svo við lúrum fram eftir morgni bara í staðinn  Halldóra Margrét alltaf að stækka og stækka finnst okkur, og á ofurhraða nú þessa daganna... heheh því hin er svo lítil. Hún er voða ánægð á leikskólanum og svo fékk hún að fara heim með ömmu Dóru og afa Árna í Njarðvíkurnar um helgina  henni finnst það nú ekki leiðinlegt, fær næga athygli og getur sko leikið sér úti á pallinum hjá þeim
Jamm&já.. hafið það gott og verið góð hvort við annað  All we need is lov... duuu du ru du ru...
»
07.10.2008 12:28:53 / harpa
Já nú er minnsta daman orðin vikugömul, ótrúlegt  gengur bara ljómandi vel með skvísuna. Hún er voða góð  Halldóra Margrét er að venjast, henni finnst voða gaman að vera í kringum litlu systir og segir "sitti" og bendir í vögguna  vill alltaf vera að strjúka henni..svo sjáum við hvernig hún aðlagast þessu öllu saman 
Það er nú meira ástandið hér á landi, maður er á hálfgerðu sjokki.... vonandi jafnar þessi kreppa sig. Maður þarf bara að fara og hamstra í búðum, kaupa nóg af bleyjum, hveiti og sykri og hreinlega að fara baka sér brauð og senda Húnboga út að veiða  hehe.. Jæja en vonum að þetta gangi ekki svo langt að allt fari til helv..
Hugs&kisses
»
Síður: 1 2 3 ... 20
|
Harpa G. Sigurjóns.
Ég og Húnbogi minn eigum 2 litlar skvísur, Halldóru Margréti, hún verður 2 ára í febrúar á næsta ári og eina litla sem fæddist í september.
Við erum að byggja í Njarðvíkunum og væntum þess að flytja þar inn snemma á næsta ári. Búum semsagt í Reykjavík nú sem stendur, á Lindargötunni:) Halldóra á Leikskólanum Lindarborg, alsæl þar:)
Heimsóknir
Í dag: 0 Alls: 58696
|